|
 Fótspor eftir Stórfót. Maðurinn á myndinni er ekki Stórfótur.
- Á föstudaginn erum við með Brecht-sýningu í LHÍ. Brecht var maður sem var ekki bara með nafn sem fáir geta borið fram rétt heldur skrifaði hann líka helling af áhugaverðum verkum. Ef þig langar að koma og sjá skaltu mæta niðrí LHÍ á Sölvhólsgötunni á föstudaginn kl. 16:00.
- Nýtt tímarit hann/hún er komið út. Farið í næsta Bónus eða á htimarit.is og lesið greinar eftir okkur bræðurna um þema mánaðarins - ástina (enda sérfræðingar á því sviði). Svo erum við líka að fíflast með eitthvað annað líka.
- Er kominn inn á Facebook sem er fáránleg tímasuga. Fólk er að senda mér rusl allan daginn sem ég get ekki skoðað nema senda það á 20 vini mína. Einhvers staðar situr maðurinn sem fann upp keðjubréfið og hlær.
- Ég er vefstjóri á síðunni www.leiklistarnemar.is. Held ég hafi ekki minnst á hana hér áður. Endilega kíkið á hana ef þið viljið sjá hvað við erum að bralla.
- Í þarsíðustu viku veislustýrði ég minni fyrstu skemmtun: Þorrablóti á Varmalandi. Það gekk vel, enda naut ég dyggrar aðstoðar risa-sombrerohattsins míns. Næsta gigg er núna eftir rúmlega viku: ég er að veislustýra árshátíð Reykjavíkurdeildar Rauða Krossins.
- Tortímandagiggið gekk eins og í sögu (eftir C.S.Lewis - fullt af talandi ljónum og allavega ein snædrottning) og var allt tekið upp. Hendi kannski myndbandi á netið við tækifæri.
- Svo förum við bráðum að fara í Shakespeare. 9 vikna námskeið sem verður alveg fram í maí. Sjiiiitt...
- Já, og mér skilst að borgarstjórnin hér í Rvk. sé í svo miklu rugli að þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst síðan MA var dæmt tap á móti Menntaskólanum við Stjörnutorg í fyrravetur.
Stórfóur, Guffi og Max.
|