|
Vitanlega á að koma því þannig fyrir fyrst, að stúlkan sitji við brík sófans og setjast síðan við hlið hennar. Þá getur hún síður skotið sér undan, þegar hann fer að fara á fjörurnar við hana. Þegar þessu hefir verið komið svona fyrir, með einum eða öðrum ráðum, má með hægu móti hagræða púðunum við bakið á henni og læða um leið handleggnum aftur fyrir sófann, og síðan smátt og smátt um herðar henni. Látið yður ekki bregða, þótt hún víki sér undan; og jafnvel þótt hún víki sér undan og æpi, þá skuluð þér ekki kippa yður upp við það. Þér skuluð meir að segja vera rólegir, þótt hún víki sér undan, æpi og reyni að standa upp. Haldið henni hógværlega, en þéttingsfast og sefið ótta hennar með sannfærandi orðum. En ef hún víkur sér undan, æpir hátt eða rekur upp öskur, þá skuluð þér fara að gá að yður; og ef hún fer að klóra framan í yður þá megið þér fara að hugsa ráð yðar og reyna að losa yður úr þessu vandræðaástandi. Slíkar stúlkur eru engin lömb að leika sér við… og þær láta ekki kyssa sig.” |
| Unnur Birna February 2, 2008 02:25 PM PST Ahaha... pant ekki | ||
| María February 1, 2008 12:57 PM PST haha! :D þessi bók er svo fyndin ^^ | ||
| Sirrý Sif Sigurlaugar January 31, 2008 09:36 PM PST hahaha! hlakka til að lenda í þessu. don't poke the bear | ||
| Leave a Comment: |