MA-gengið
Addi
Andri
Atli Sig
Auður Stefáns
Aui
Elísa
Embla
Emmi Freyr
Emmi Geir
Gestur
Guðrún krulla
Haukur
Helgi Vilberg
Keli
María
Ó. Haukur
Ragnheiður
Siggeir
Siggi Gísli

Sirrý
Steinunn Póló
Sverrir Páll
Unnur Birna
Örlygur Hnefill
Þórdís
4. bekkur 2003-2004

Familían
Benni's Harmony
Eyri
Guðni
Ingalóa

Annað sniðugt
Akureyri í beinni
Back to the Future
Chuck Palahniuk
Colin Hay
Eddie Izzard
Ég komst inn
Five for Fighting
Hr. Hollywood
J.K. Rowling
MA-komiks
Muninn.is
Neil Gaiman
RENT
Rígurinn
Scrubs
Steve Martin
Zach Braff



Spring Awakening
Original Broadway Cast
-------
Gerum eitthvað róttækt
förum að sofa
Helgi Vilberg
-------
Absolution
Muse
-------
The Ultimate Party Collection Vol. 1
Sick Animation
-------
We were here
Joshua Radin
-------
28 Days Later
Original Soundtrack
-------
Hair
The American Rock Musical
-------
Hedwig and the Angry Inch
Original Movie Soundtrack
-------
Twenty-something
Jamie Cullum
-------
Catching Tales
Jamie Cullum
-------
Two Lights
Five for Fighting
-------
Walk the Line
Original Soundtrack
-------
Sálin og Gospel
Sálin og Gospel
-------
Avenue Q
Original Broadway Cast
-------
Robbie Williams
Rudebox
-------
Garden State
Original Movie Soundtrack
-------
The Last Kiss
Original Movie Soundtrack
-------

web statistics
 
January 17, 2008
Líf mitt í teiknimyndasöguformi

Um daginn opnaði ég Fréttablaðið og rakst á teiknimyndasögu sem var eins og klippt út úr mínu lífi. Ég hef því ákveðið að reyna að finna teiknimyndasögur sem passa við líf mitt og stefni á að setja eina á dag hér inn á bloggið næstu vikuna. Fyrsta sagan er áðurnefnd strýpa úr Fréttablaðinu núna á mánudaginn. Ef einhver rekst á sögu sem passar má endilega láta mig vita.
Af hverju er ég að þessu? Ekki glóru...



Annars stefnum við María á að fara út til London um páskana og þá á að sjálfsögðu að kíkja í leikhús. Eftir smá leit rakst á á Tinna-leikrit, byggt á bókinni Tinni í Tíbet, en því miður var það bara sýnt í des og jan. Ég fann samt nokkrar myndir úr því sem ættu að gleðja Tinna-aðdáendur. Ég hló allavega mikið að þeim...












Annars ekkert.


Posted at 12:24 by 20atb
Sagt... (3)  

January 12, 2008
Var að taka til í tölvunni heima og rakst á þetta í "Recived files"


Posted at 10:26 by 20atb
Sagt... (5)  

January 9, 2008
"Totally fucked" - Vorið vaknar

Jæja, bloggið er komið í lag. Og lífið held ég bara. María er neflilega búin að losa sig við þrjár stórar grímur sem hún kom með frá Afríku. Guðni kom með þá kenningu að þær væru ógæfugripir og til að sýna það og sanna henti hann litlu Afríku-grímunni sem hann fékk gefins útí sjó. Púllaði Mask á þetta. Næs.

Skólinn er byrjaður og við erum í áfanga sem heitir Samtal. Þar vinnum við með öllum deildum í skólanum og búum til list. Held ég...

Söngleikurinn Spring Awakening (Vorið vaknar) hefur heltekið mig. Handritið var fyrir mistök pantað á skólabókasafnið, en það voru nóturnar að verkinu sem átti að panta. Ég fékk handritið lánað á nóinu og las með tónlistina í eyrunum. Geðveik tónlist og brjálaður kraftur. Og handritið er magnað. Þið getið séð brot úr verkinu hér.

Annars kemur nýtt tímarit hann/hún út á næstu dögum, en þar eiga að vera einhverjar greinar eftir okkur bræðurna. Þá er ég sömuleiðis að leggja lokahönd á minn hluta af bók sem ég og þrír aðrir gaukar erum að vinna að. Ber hún nafnið Tungl og sé ég um textaskreytingu - en þeir búa til myndirnar. Þetta verður vonandi magnað og mun ég blogga um þessa svaðalegu bók þegar nær dregur útgáfu (sem verður vonandi í febrúar/mars).

Þá fagna ég því hvað íslenskar kvikmyndir
virðast vera að sækja í sig veðrið.

Annars ekkert.

Posted at 14:34 by 20atb
Segðu...  

January 3, 2008
Gleðilegt ár

Bloggid mitt virdist vera i ruglinu. Ef thid getid radid thessar runir her fyrir nedan megid thid endilega kommenta.

----

Skólinn byrjar eftir nokkra daga og í tilefni þess ákvað ég að athuga hvaða fræga fólk úti í hinum stóra heimi væri líkt mér. Eða öfugt. Því einn daginn verður maður, jú, heimsfrægur og þá verður það annað fólk úti í heimi sem tékkar hvort það sé líkt mér.
Held ég.
Skv. þessari sniðugu síðu á maður að prófa margar myndir af sér og sjá hvaða fólk kemur oft upp. Þá veit maður að maður er líkur þeirri persónu og getur farið rólegur að sofa. Ég prófaði nokkrar myndir, en aldrei kom sá sami upp. Ætli það þýði ekki að ég sé einstakur? Eða hermikráka dauðans.
Hvað sagði líkið við hitt líkið? "Við erum lík."










Annars ekkert.

Yfir og út!

Posted at 09:38 by 20atb
Sagt... (5)  

December 24, 2007
Gleðileg jól

Síðustu daga hef ég verið frekar einmanna. María er farin norður yfir heiðar og verður þar um jólin, Séra Sveinn (kötturinn þ.e.a.s.) er kominn upp í sveit til mömmu og pabba (míns, ekki hans þ.e.a.s.) þar sem hann verður yfir jólin og ég er búinn að vera í Reykjavík að leika Gáttaþef (þennan feita þ.e.a.s.) í Smáralindinni. En á morgun (aðfangadag þ.e.a.s.) fer ég loksins heim og hlakka til. Þ.e.a.s.
Ég fór niður í bæ núna áðan með Jóel til að skoða hvernig Reykvíkingar halda uppá Þolllákinn. Miðbærinn var við það að springa af fólki en þrátt fyrir það hitti ég fáa sem ég þekkti. Þess í stað rakst ég aftur á móti á hressa konu í glasi sem vildi helst kýla mig kaldan (þó ekki í alvöru) því ég komst inn í LHÍ en ekki sonur hennar. Þetta var þó allt í góðu og við föðmðumst og óskuðum hvort öðru gleðilegra jóla eftir gott og hresst spjall.

Síðasta sýning á Jólaævintýri Smáralindar 2007 var í dag og var troðið mjög. Ég á enn eftir að komast í almennilegt jólaskap en býst fastlega við því að það gerist seinnipartinn á morgun. Guðni heldur því fram að jólagjöfin frá honum og Ingulóu sé svo rosaleg að hann ákvað að gefa mér ekki neina afmælisgjöf. Ég býst því við einhverju rosalegu. En ef hann gefur mér lifesize pappa-Fabio eins og hann var að spá í í fyrra lem ég hann.
Mig langaði að henda inn nokkrum myndum úr Jólaævintýrinu sem voru teknar um síðustu helgi. Ég er s.s. feiti jólasveinninn (í svo miklu gervi að Siggi Gísli, sem var með mér í bekk í níu ár í grunnskóla og tvö ár í herbergi í MA, þurfti að SMS-a Ingulóu og spyrja hana hvern ég væri eiginlega að leika) og Hvergirðingurinn með pípuhattinn. Himmi er Stúfur og bæjarstjóri Hvergibæjar, Björgvin Franz er Trölli og svona mætti lengi telja. Svo koma þarna nokkrar myndir af okkur Maríu að leika okkur með nefið hans Gáttaþefs.

Ef þið viljið komast í jólaskap mæli ég með að þið reynið að nálgast trompet-útgáfuna af Oh Holy Night úr sjónvarpsþættinum Studio 60. Geðveik.

Gleðileg jól!





















Posted at 00:00 by 20atb
Sagt... (2)  

December 20, 2007
Guð minn góður

Þetta er eitt það óhuggulegasta sem ég hef nokkurn tíman séð.
Djöfull er fólk ruglað í hausnum.

Yfir og út!

Posted at 14:03 by 20atb
Sagt... (3)  

December 16, 2007
Önnur saga


Posted at 18:21 by 20atb
Sagt... (4)  

December 13, 2007
Glerkassar, jólasveinaleysi, ljóð eftir Steve Martin og "Í beinni frá Birkimelnum II"

Margt er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.
Skólinn er "búinn", innan gæsalappa því við þurfum að skila ritgerð á morgun, og við kláruðum hann á áfanga sem heitir "Nýjir miðlar". Þar var ég m.a. lokaður inn í "a glass box of emotions" í orðsins fyllstu merkingu á engu nema brókinni. Svona had-to-be-there-móment.
Glöggir lesendur bloggsins og Fréttablaðsins hafa kannski tekið eftir því að ég ekki lengur á forsíðunni á hverjum morgni til að telja niður í Jólin í gervi Gáttaþefs. Þess í stað eru myndir af litlum sætum og brosandi börnum sem vita hreinlega ekki betur. Ástæðan fyrir þessu er sú að ég vildi fá almennilega borgað fyrir mína vinnu og þegar samningar náðust ekki var myndunum kippt út. Svona er maður orðinn harður nagli. Ég á þó enn eftir að rukka fyrir myndirnar sem voru birtar, að ég tali nú ekki um heilsíðuauglýsinguna sem var birt 6. des og verður gengið í það á næstu dögum.


Síðustu daga hef ég verið að dunda mér við að lesa nýútkomna ævisögu leikarans og grínistans Steve Martin. Í henni rakst ég á texta við lag sem hann söng oft þegar hann var stand-öpp-isti og finnst skemmtilega hnyttinn. Ég hef því ákveðið að henda honum hér inn og stefni á að ramma hann inn og hengja upp heima (með góðfúslegu leyfi húsfrúarinnar, að sjálfsögðu):

We’re having some fun
We’ve got music and laughter
And wonderful times

That’s so important in today’s world

Oh yeah.

It’s so hard to laugh
It seems that short of tripping a nun
Nothing is funny anymore

But you know
I see people going to college
For fourteen years
Studying to be doctors and lawyers
And I see people going to work
At the drugstore at 7:30 every morning

To sell Flair pens

But the most amazing thing to me is
I get paid
For doing
This.

Jólablað hann/hún-tímarits er komið út og þar eigum við Guðni þrjár greinar. Ég er með jólahugleiðingu og ber saman jólasveinana fyrr og nú á meðan Guðni lýsir því hvernig má, á sem karlmannlegastan hátt, veiða jólatré. Já, ég sagði veiða, ekki kaupa eða höggva niður. Blaðið má nálgast á htimarit.is eða í Bónus þar sem það er frítt. Fáránlega fyndin grein hjá litla bróður, sem er ekki bara orðinn stærr en ég heldur á hann afmæli í dag líka. Orðinn tvítugur.
Shit, við verðum öll dauð eftir smástund...


(Takið sérstaklega eftir myndarlegum jólasveini og bæjarstjóra Hvergibæjar)

Jólaævintýri Smáralindar er á fullu og ég hvet alla sem hafa ekki komið að skella sér að loknum prófum og koma sér í jólaskap. Við erum að sýna fimmtudaga-sunnudaga til Jóla. Það er svo algerlega ykkar hvort þið kaupið eitthvað þegar þið eruð búin að horfa á sýninguna. Hún er ca. klukkutími að lengd og svo getiði látið taka mynd af ykkur með jólasveinunum á eftir. Og kostar ekki neitt. Hó-hó-hó.

Annars tók ég mig til og henti vikugömlu myndbandi af okkur Maríu og kettinum okkar á netið. Þegar myndbandið er tekið heitir kötturinn Koddi, en eins og alþjóð veit heitir hann núna Sveinn og mun heita það um ókomna tíð. Á nóttunni og stundum á daginn breytist Sveinn þó í skæruliða og ræðst á fólk og sófa. Látið því ekki blekkjast af krúttlegheitum hans.



Yfir og út!

Posted at 13:55 by 20atb
Sagt... (4)  

December 3, 2007
Af jólasveinum og kettlingum

Jæja, allt að verða crazy. Við María erum orðnir stoltir eigengur lítils, svarts og loðins kettlings (það er óþægilegt að tala í eignarfalli) sem er búinn að heita mörgum nöfnum um helgina. Fyrst vildum við að hann héti Koddi, svo Hnoðri, þar næst Hugleikur og svo Keli. Að lokum ákváðum við að nefna hann í höfuðið á Vopnfirðingnum og heiðursmanninum Sveini Daniel og heitir hann því Sveinn. Þið megið endilega kíkja í heimsókn og leika við hann, hann er ægilega sætur.

Jólaævintýri Smáralindar var frumsýnt um helgina en þar leikum við Himmi bekkjarbróðir jólasveina ásamt Erni Árnasyni, Björgvini Franz og fleiri góðu fólki. Það kostar ekkert inn og við erum að sýna allar helgar fram að jólum. Stundum á fimmtudögum og föstudögum líka.

"Litla" systir mín er 16 ára í dag. Ég man að daginn sem hún fæddist var þriðji þáttur af jóladagatalinu Stjörnustrákur sýndur. Í fyrsta skipti þ.e.a.s. Áður en RÚV ákvað að hætta að gera jóladagatöl og endursýna þessi gömlu bara. Í þættinum var vísbendingin falin í snúð í bakaríi. Guðni vildi að hún yrði strákur og ég vildi fá stelpu. Feis!
Til hamingju með daginn Ingalóa. :)

Þá langar mig í beinu framhaldi að benda á jólasveininn Gáttaþef sem telur niður jólin í boði Smáralindar framan á Fréttablaðinu þennan mánuðinn. Ef vel er að gáð sést að hann er glettilega líkur undirrituðum.
 
   
Hó-hó-hó.

Posted at 09:55 by 20atb
Sagt... (9)  

November 28, 2007
Trúðar

Ef þú ert á ferðinni í 101 á morgun milli 14:30 og 15:30 geturðu kíkt við í Listaháskólanum og séð trúðana sem við bekkurinn fæddum í síðustu viku. Þeir eru voða næs.



Posted at 14:40 by 20atb
Sagt... (2)  

Previous Page Next Page

 

 

Blogdrive