|
|
|
February 17, 2008
Farvel - Í bili að minnsta kosti
 Kevin Spacey sagði eitt sinn: "The less you know about me, the easier it is to convince you that I am that character on screen. It allows an audience to come into a movie theatre and believe I am that person." Ég hef ákveðið að taka kappann á orðinu - enda mikill kappi hér á ferðinni.
Þess vegna ætla ég að hætta að blogga.
Ef fólk vill vita hvað ég er að bralla má það e-maila mig (aevarthor hjá gmail) eða adda mér á msn (ffh_ufo hjá hotmail) eða Facebook. Svo verð ég áfram penni hjá hann/hún og þar ætti að vera hægt að lesa eitthvað eftir mig í hverjum mánuði. Þó er aldrei að vita, ef eitthvað stórmerkilegt er að gerast, að ég hendi inn einhverju hér inn. Þannig að ef þú hefur ekkert að gera geturðu tékkað hér inn. Kannski verður eitthvað nýtt komið. Aldrei að vita. En kannski verður ekkert...
Ég er búinn að blogga í mörg ár - þannig að þetta er mjög furðuleg og blendin tilfinning. Ég byrjaði á gömlu heimasíðunni minni í 10. bekk með "Vefdagbók", færði mig svo yfir á folk.is árið 2004 og svo yfir á blogdrive rúmlega ári seinna. Þetta eru næstum 8 ár. Shit. Þrjár færslur á bloggtímabilinu hér á blogdrive.com standa uppúr: Þegar ég komst ekki inn í LHÍ, þegar ég svo komst inn og þegar Versló var dæmdur sigur yfir MA í MorfÍs. Þessi þrjú blogg kæfðu kommentakerfið mitt og munu vafalaust fara á spjöld sögunnar. Sögunnar minnar þ.e.a.s. Því mér fannst þau merkileg. Ég held að besta kommentið sem ég hafi fengið hafi verið frá Hauki Sig, þegar hann sagði orðrétt: "WTFOMGBBQ!!!1"
Takk fyrir að nenna að fylgjast með í allan þennan tíma.
Annars ekkert.
Yfir og út.
Posted at 22:13 by 20atb
 |  |  | yourshop.cc December 4, 2008 05:33 AM PST
http://www.watchesforsale.us |  |
  |  |  | yourshop.cc December 4, 2008 05:30 AM PST
http://www.watchesforsale.us |  |
  |  |  | -GtA June 24, 2008 09:45 AM PDT
8 ár þýða að þú ert gamall! sjitt, allir eru að eldast... ég sá þig úti að labba þegar ég var á leiðinni á badmintonæfingu!
love |  |
  |  |  | Name April 14, 2008 02:27 AM PDT
pfff.... |  |
  |  |  | svp March 21, 2008 10:44 PM PDT
Sko.
Núna vantar til dæmis blogg um þessr 15 leiksýningar sem þú ert á fullu að skoða á tæpri viku.
Gleðilega páska
svp |  |
  |  |  | Krullan March 11, 2008 08:44 AM PDT
Ég hélt að þetta væri djók og er því búin að kíkja reglulega hérna inn...
en það er það ekki ....
Ef þetta er djók þá er það orðið langdrægt og leiðinlegt
Beiler....
Ekkki hætta að blogga Ævar. Hvernig á ég að fylgjast með þér? Ekki segja Facebook og eh það er ekki það sama! |  |
  |  |  | Unnur Birna March 10, 2008 11:29 PM PDT
Hey ekki vera með þessa stjörnustæla!
(vér mótmælum allir) |  |
  |  |  | Siggeir March 8, 2008 01:58 PM PST
Nei common! |  |
  |  |  | sirrý sif sigurlaugardóttir February 28, 2008 12:33 PM PST
ég kem þá bara oftar í heimsókn.
takk fyrir að vera til ef ég segi það ekki nóg. |  |
  |  |  | Sunny February 25, 2008 07:27 AM PST
Neeeeeeeeiiiiiii ekki hætta!!!!!! :,( |  |
  |  |  | Himmi February 23, 2008 06:47 PM PST
jeg trúi þessu ekki. í alvöru, jeg trúi þessu ekki. |  |
  |  |  | Matti Matt February 20, 2008 08:38 AM PST
Hurru, þetta er barasta ekki hægt, þú er svo massa skemmtilegur penni.....en that´s life.....sjáumst hressir |  |
  |  |  | svp February 20, 2008 06:44 AM PST
Ég mun sakna þess ákaflega vegna þess að í mínum huga eru bloggsíður eins og þín einmitt vettvangur til að fylgjast með vinum sínum án þess að vera bókstaflega inni á gafli hjá þeim. En þú getur alveg hætt við að hætta. |  |
  |  |  | Name February 20, 2008 06:24 AM PST
þetta er sannarlega ömurlegt. takk fyrir mig, þessa bloggs verður ó svo sárt saknað. |  |
  |  |  | Auður February 19, 2008 10:07 PM PST
Ég á eftir að sakna þín... |  |
  |  |  | Steinunn February 18, 2008 09:23 AM PST
Ja þetta finnst mér svo sannarlega ömurlegt!
En takk fyrir mig, þessa bloggs verður sárt, ó svo sárt saknað. |  |
  |  |  | María February 18, 2008 08:01 AM PST
Blogga þinna verður sárt saknað. Ég sendi bara email þá. ;) |  |
|