Spring Awakening
Original Broadway Cast
------- Gerum eitthvað róttækt förum að sofa
Helgi Vilberg
------- Absolution
Muse
------- The Ultimate Party Collection Vol. 1
Sick Animation
------- We were here
Joshua Radin
------- 28 Days Later
Original Soundtrack
------- Hair
The American Rock Musical
------- Hedwig and the Angry Inch
Original Movie Soundtrack
------- Twenty-something
Jamie Cullum
------- Catching Tales
Jamie Cullum
------- Two Lights
Five for Fighting
------- Walk the Line Original Soundtrack
------- Sálin og Gospel
Sálin og Gospel
------- Avenue Q
Original Broadway Cast
------- Robbie Williams
Rudebox
------- Garden State
Original Movie Soundtrack
------- The Last Kiss
Original Movie Soundtrack
-------
February 13, 2008
Stiklað á stóru. Eins og Stórfótur...
Fótspor eftir Stórfót. Maðurinn á myndinni er ekki Stórfótur.
Á föstudaginn erum við með Brecht-sýningu í LHÍ. Brecht var maður sem var ekki bara með nafn sem fáir geta borið fram rétt heldur skrifaði hann líka helling af áhugaverðum verkum. Ef þig langar að koma og sjá skaltu mæta niðrí LHÍ á Sölvhólsgötunni á föstudaginn kl. 16:00.
Nýtt tímarit hann/hún er komið út. Farið í næsta Bónus eða á htimarit.is og lesið greinar eftir okkur bræðurna um þema mánaðarins - ástina (enda sérfræðingar á því sviði). Svo erum við líka að fíflast með eitthvað annað líka.
Er kominn inn á Facebook sem er fáránleg tímasuga. Fólk er að senda mér rusl allan daginn sem ég get ekki skoðað nema senda það á 20 vini mína. Einhvers staðar situr maðurinn sem fann upp keðjubréfið og hlær.
Ég er vefstjóri á síðunni www.leiklistarnemar.is. Held ég hafi ekki minnst á hana hér áður. Endilega kíkið á hana ef þið viljið sjá hvað við erum að bralla.
Í þarsíðustu viku veislustýrði ég minni fyrstu skemmtun: Þorrablóti á Varmalandi. Það gekk vel, enda naut ég dyggrar aðstoðar risa-sombrerohattsins míns. Næsta gigg er núna eftir rúmlega viku: ég er að veislustýra árshátíð Reykjavíkurdeildar Rauða Krossins.
Tortímandagiggið gekk eins og í sögu (eftir C.S.Lewis - fullt af talandi ljónum og allavega ein snædrottning) og var allt tekið upp. Hendi kannski myndbandi á netið við tækifæri.
Svo förum við bráðum að fara í Shakespeare. 9 vikna námskeið sem verður alveg fram í maí. Sjiiiitt...
Já, og mér skilst að borgarstjórnin hér í Rvk. sé í svo miklu rugli að þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst síðan MA var dæmt tap á móti Menntaskólanum við Stjörnutorg í fyrravetur.
Stórfótur og bensínlausi pallbíllinn hans
Stórfóur, Guffi og Max.
Posted at 19:55 by 20atb
Ingalóa February 15, 2008 01:35 PM PST haha hvað er málið með stórfót :')
María February 15, 2008 10:17 AM PST Stórfóts atriðið í Guffagrín er bara best! Ég held að ég og Þura höfum horft á það um 64 sinnum. :)