|
|
|
November 25, 2006
Sit heima hjá Adda á Akureyri og virði fyrir mér gamla herbergið mitt sem Sigurður Helgi Oddsson býr í þessa stundina. Ástæðan fyrir því að ég fór norður núna um helgina var sú að ég var að fylgjast með MorfÍs-liðinu Eygló keppa við lið Versló í 16 liða úrslitum. Við Sigurður Helgi misstum okkur í að stjórna klappliði MA-inga og börðumst hetjulega við Verslinga sem virðast ekki geta hvatt sitt lið án þess að vera vopnaðir lúðrum og trommum. Engu að síður var gríðarlega gaman að öskra sig raddlausan fyrir góðan málstað. Hasta la victora! MA!
Eftir harða keppni kom oddadómarinn upp á svið og tilkynnti okkur það að Versló hefði bæði unnið og ætti ræðumann kvöldsins. Þá var Guðni næstur inn í ræðumann kvöldsins, aðeins 5 stigum á eftir. Versló unnu með 150 stiga mun, þar sem einn dómaranna hafði dæmt þeim meira en 100 stiga sigur. Nú geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er ekki hlutlaus, en MA átti að vinna. Þau voru með rökin. Þau voru með flutninginn. Þetta var í einu löngu samsettu orði sagt dómaraskandall. Ákveðnir aðilar voru úti að aka og Versló sat við stýrið.
Eftir að keppninni lauk fór ég að velta ýmsum hlutum í sambandi við MorfÍs fyrir mér; Þegar ég tók þátt í keppninni fyrir þremur árum var hún gjarnan titluð "Fyndnasti maður framhaldsskólanna", sökum fíflaskapar og látaláta sem þar viðgengust. Eftir að hafa séð Versló vinna MA í gærkvöldi komst ég að þeirri niðurstöðu að kvikindið er búið að þróast á þessum þrem árum. Það virðast vera komnar nýjar reglur, ný viðmið, sem ég hef greinilega misst af.
Leyfið mér að útskýra:
- Í dag er í lagi að kalla fundarstjórann (sem í þessu tilviki var 17 ára stelpa og úr MA) hóru.
- Í dag er í lagi að segjast ætla að ríða fundarstjóranum af því þú "vilt það".
- Í dag er í lagi að biðja fundarstjórann afsökunar á því að hafa sagst ætla að ríða honum. Þó ekki vegna þess að það var dónalegt, heldur vegna þess að hún "er ljót".
- Í dag er í lagi að ræðulið sé með dónaskap við og græti varðmanninn úr skóla andstæðinganna (sem í þessu tilviki var kvenkyns) sem fylgir þeim í sér stofu fyrir keppni og í hléi.
- Í dag má láta bíða eftir sér eftir að búið að er biðja mann að koma upp í pontu í tæpa mínútu.
- Í dag má hafa stuðningslið sem er undir áhrifum áfengis.
- Í dag má hafa stuðningslið sem gargar inn í ræður andstæðinganna.
- Í dag má hafa stuðningslið sem í stað þess að hvetja sitt eigið lið, byrjar hástöfum að kalla stúlkurnar úr hinum skólanum lessur.
- Í dag má hafa stuðningslið sem áreitir fundarstjórann.
- Í dag er í lagi að meira en helmingur liðs láti oddadómarann, sem ætlar að tilkynna úrslitin, bíða eftir sér það lengi að senda þurfi fleiri manns til að leita að þeim.
- Í dag eru lið og/eða stuðningslið hvorki ávítuð, né fá þau refsistig fyrir hlutina hér fyrir ofan.
- Viðbót: Í dag er í lagi að dómarar kjafti úrslitum kvöldsins til annars liðsins áður en þau eru tilkynnt.
Ég óska Versló og meirihluta dómara gærkvöldsins til hamingju fyrir það að sýna mér hina sönnu MorfÍs.
MorfÍs er dauð. Þetta er eitthvað allt annað.
Viðauki: Mæli með að fólk fari á síðuna hans Emma, sem þjálfaði MA-liðið, og lesi einnig grein hans um keppnina.
Posted at 20:15 by 20atb
 |  |  | Þorsteinn Júlíus November 29, 2006 10:30 PM PST
Spyr.
Hvernig, afsaka MA-ingar það þegar fundarstýran gerði sig seka um að reka á eftir ræðumanni Verzlinga?
Ó, hvernig?
Eftirskrift: Svar óskast.
Seinni eftirskrift: Verzlingar sáu sóma sinn í að biðjast afsökunar á viðbrögðum sínum við litla hernaðarbragðinu ykkar með varðmanninn. Nú er komið að ykkur að svara.
Síðasta, ég lofa, eftirskrift: Fjandi er þetta kjánalegt hjá mér eitthvað. |  |
  |  |  | Sindri 3.VX November 29, 2006 01:47 AM PST
Ég get staðfest þetta með áfengið, fann sterka spíralykt upp úr einum, ahem, fleiri enn einum verzlingnum þegar þeir flyktust framhjá, það vildi svo til að það var að minnsta kosti ein eða tvær sætaraðir sem voru undir áhrifum áfengis í hópi vezalinga. [:)...?]
...og hvenar var það þannig að þú getur unnið ræðukeppni með útúrsnúningum, lélegum ósmekklegum bröndurum, og almennt öskrandi klósettorð?
Það mætti segja að ég hafi skammast mín fyrir að vera í sama húsi og þetta aumingja fólk á meðan keppninni stóð, þessvegna fór ég rakleiðis út þegar hún var búin, eins og margir aðrir.
Verzlingar hafa í mínum augum ekki meiri virðingu en rykið sem á til að safnast saman undir borðunum í Muninskompunni.
Kveðja, Sindri |  |
  |  |  | Helga November 28, 2006 09:15 PM PST
Langaði líka að bæta við...
Skemmtilegt hvað svarið þitt, Vísir, endurspeglaði akkúrat það sem fólk hefur verið að ræða hérna. Dónaskap.
-Again...takk fyrir mig |  |
  |  |  | Helga November 28, 2006 09:00 PM PST
Ég verð að viðurkenna að ég endaði seinasta komment á þeim lýsingum sem Verlslingar telja lýsandi fyrir Mennskælinga á þessum tímapunkti. Þ.e.a.s. bitur, súr,hörundsár og lesbísk. Ég er ekki lesbísk, ekki bitur og ekki sár en ég verð að viðurkenna að ég er hörundsár enda mikil tilfinningavera.
Það sem ég var að reyna að segja með að þið væruð að drulla yfir okkur var að mér fannst þetta heldur "persónulegt" og beindist að okkur, Menntskælingum á meðan við héldum okkur frá því að yrða á ykkur í hvatningarópum okkar. Fyrir utan "versló með rjóma á" sem getur seint talist persónulegt. Ég tek undir með Aroni að ykkar dónaskapur beindist gagnvart ákveðnum aðilum en okkar var meira út í loftið.
Ég verð nú samt að segja að lagið ykkar "það eru hommar í versló" var grípandi og ég glotti út í annað og fannst þetta nokkuð skondið. En það hefði verið bros ef þið hefðuð sleppt dónaskapnum og verið ykkur og menntastofnun ykkar til sóma.
Mér fannst við, Menntskælingar, labba burt með meiri virðingu og sóma en Verslingar þrátt fyrir tap í keppninni og ég var stolt að vera í MA og ég var stolt af hegðun samnemenda minna. En ég er að sjálfsögðu mjög hlutdræg og þetta er mín skoðun.
-Takk fyrir mig |  |
  |  |  | Aron MA-ingur November 28, 2006 07:54 PM PST
Er ekki bara málið að það var stór munur á bæði ræðuliðunum og stuðningsliðunum í þessari keppni, góður eða slæmur?
Stuðningslið Verzló hefur greinilega gert það að hefð að nota trommur, lúðra og hrossabresti til að hvetja á meðan við í MA höfum vanið okkur á að nota einungis hendur okkar tvær og raddbönd.
Mikil umræða hefur verið um þetta "það eru lessur í MA" og finnst mér hún að öllu leyti óþörf. Eins og einhver sagði þá hefur í langan tíma verið sungið: það eru hommar í versló og sjálfsagt voru einhverjir bitrir fyrst en ég efast um að meirihlutinn hafi tekið þetta nærri sér. Ég efast því stórlega um að Versló séu eitthvað ofur-ánægðir ef einhver tók þetta of nærri sér hjá okkur. Svona lag er bara lag og það er örugglega ekki verið að reyna að særa einn eða neinn.
Talandi um fyllerí og dólgslæti í stuðningsliði Verzló þá hef ég heyrt setningar eins og "þau voru bara öll blindfull". Það hreinlega stenst ekki og er ég sammála því sem sagt var hér áður að ekki þýðir að saka heildina um það sem hluti hennar gerir sér og öðrum til ósóma.
Þó hreinlega verð ég að taka fram að ég sé ekki fyrir að nokkur stuðningsmaður MA myndi neyta áfengis í óhófi fyrir svona keppni og treysti ég því að nemendur skólans haldi áfram að koma fram af virðingu við samnemendur sína og skólann sinn með því að láta vín eiga sig þegar kemur að skóla-tengdum atburðum.
Svo vil ég spyrja verslinga svona almennt, hvort er meiri dónaskapur að taka um öxl fundarstýru og segja beint við hana: ég ætla að ríða þér í kvöld og kalla hana svo fundarhóru, eða að biðja ræðumann aftur að koma uppí pontu blásaklaust?
Ég viðurkenni að ég tók eftir því að fundarstýran "sussaði" nánast bara á Verzlingana en ekki okkur MA-ingana og það er auðvitað leiðinlegt, en þó finnst mér fáránlegt að það þurfi að "sussa" á hálf-fullorðið fólk (ATH. beini þessu ekki að einum eða neinum)
Staðreyndin er bara sú:
1. Við erum óvön trommum, lúðrum og slíku og kann því að vera að við höfum sussað á Versló
2. Við erum óvön því að þurfa að bíða eftir því að ræðumaður komi uppí pontu, það sást best á því að enginn MA-ræðumannanna lét bíða eftir sér (minnir mig allavega, þori ekki að fullyrða).
Þess vegna finnst okkur þetta pirrandi.
Ræður keppinauta ætla ég ekki að tala um, oft koma upp tveir pólar sem tengjast ekki neitt í svona keppni og er þá erfitt að bera þá tvo saman t.d.
Öll illska er Satan að kenna.
Öll illska er manninum að kenna.
Auk þess sem Satan sjálfur er mjög erfitt umræðuefni.
Að lokum:
Það skal enginn segja mér að MA-hefði átt að vera dæmdur yfirburða-sigur í þessari keppni því að við vorum alls ekki MIKLU betri en Versló alveg eins og þeir voru ekki MIKLU betri en við. Þarna mættust tvö hörku Morfís-lið sem bæði eiga fullt erindi í þessa keppni og vil ég óska Verzlingum til hamingju með sigurinn þó að mér hafi fundist dónaskapurinn í ræðunum hjá þeim beinast beint að ákveðnu fólki en okkar dónaskapur meira svona ónafngreint út í loftið. |  |
  |  |  | Addi November 28, 2006 07:10 PM PST
En, Vísir... þá er það bara eins og ég kalli þig helvítis dóna, sem þú jú ert, og telji það bara í fínasta lagi þar sem að það sé satt. Þú hefur engan rétt til að kall einhvern "lessan þín!" (taktu eftir ! merkinu, það er dónalegt og gefur til kynna að þú sért að nota það á óviðeigandi hátt).
Auk þess myndi Helga örugglega miklu frekar kjósa að vera kölluð lesbía. Það er ekki ljótt orð, en lessa er það, sérstaklega þegar það er notað á þann hátt sem þú gerir hér.
Og annað...
Nú helduru því fram að þetta sé í góðu lagi þar sem að þið hafið bara bent á ákveðin einkenni hjá viðkomandi. Ertu s.s. að segja að heill skóli, strákar og stelpur, sé allur lesbískur...? Veistu, þetta er bara svo fáránlega asnaleg afsökun á framkomu ykkar að hún er næstum eki svara verð, enda er ég aðeins hérna að taka upp hanskann fyrir Helgu og hina MA-ingana.
Lærðu mannsiði... dóni! |  |
  |  |  | Vísir November 28, 2006 06:48 PM PST
Helga, segðu mér... Hvernig er verið að drulla yfir MA og segja að það séu Lessur þar... Þetta er einsog að segja að ég drulli yfir náungann þegar ég segi, djöfull ertu nettur... Því einsog þú sagðir áðan, þá er ekkert að því að vera lessa og er þá ekki í rauninni bara verið að benda á eitthvað ákveðið einkenni hjá viðkomandi? Svaraðu þessu, lessan þín! |  |
  |  |  | Helga November 28, 2006 06:00 PM PST
Það að segja að Ævar sé teprulegur að vera "á móti" lúðrum, trommum og bjór er hlægilega barnalegt.
Allar samkomur innan Menntaskólans á Akureyri eru vímulausar og þá er átt við ALLAR samkomur, eins og áður hefur komið fram hérna. Þegar ég er gestur einhversstaðar virði í reglur. Þarna bar Verlingum að virða reglur MA.
"Þarna skín biturleiki ykkar ma-inga í gegn þar sem að rétt rúmt 200 manna fylgi náði að yfirgnæfa ykkur."
Þarna gleymdist að minnast á það að ásamt þessu 200 manna stuðningsliði ykkar var með í för trommur, lúðrar og gjallarhorn sem er svo sem í góðu lagi en síðast þegar ég vissi var MORFÍS virðuleg ræðukeppni...ekki eins og hver annar fótboltaleikur.
"En þegar sami söngur með smá breytingum er sunginn um MA, hvað þá.. þá fara allir í vörn og sækja tissjú fyrir tárin. "
Ekki varð ég vör við tár hjá Menntskælingum, ég skældi ekki og ekki manneskjan við hliðina á mér. Aftur á móti varð ég vör við hneykslun vegna þess að ekki vorum við að pota ykkur og ykkar skóla inn í "stuðningshróp" okkar. Það eru klárlega lessur í MA og það er ekkert neikvætt við það. Það sem var neikvætt við þessi hróp ykkar að þau voru aðeins gerð í einu tilgangi....að skapa hávaða og drulla yfir Mennskælinga.(Enn og aftur endurtek ég að það er ekkert neikvætt við lessur í MA)
To sum it up...þá voru Verlingar dónalegir og sýndu óvirðingu en að sjálfsögðu eru tvær hliðar á öllum málum og við höfum fengið smá innsýn í báðar hérna á þessu fína bloggi hjá Ævari.
Hér með kveður ein bitur, súr, hörundsár og lesbísk Menntaskólastúlka |  |
  |  |  | Þuríður November 28, 2006 03:10 PM PST
Mér finnst að Davíð Gill hafi drýgt refsivert athæfi upp í pontu þegar hann sagði að hann myndi drepa ræðuliðsmann Menntskælinga ef hann myndi minnast einu sinni enn á ákveðin hlut. Davíð ætti að skammast sín. Verzlunarskólinn eru samt með betra ræðulið en Menntaskólinn....later homies |  |
  |  |  | Ævar November 27, 2006 11:59 PM PST
Sæll Davíð.
Jú, mikið rétt. Það var ég sem sat og reif mynd af Birni Braga á meðan hann flutti ræðu í undanúrslitum MorfÍs 2004 og tel ég það ekki til eftirbreytni. Ég gæti sagt að það hafi verið af því að ég var ungur og vitlaus, en ég sleppi því. Auðvitað var þetta helber dónaskapur og virðingarleysi, sem á ekki að líðast, enda hafði þessi framkoma mín áhrif á stigin sem ég fékk í keppninni. Ræðumenn eiga að koma fram af kurteisi og háttvísi og lærði ég töluvert af þessum fíflalátum mínum.
En að spurningunni þinni:
Á föstudagskvöldið síðastliðið og daginn eftir fengum við Elmar, þjálfari liðs MA, spurnir af því frá sitt hvorum aðilanum að þeir hefðu verið að ganga sem leið lá fram hjá nokkrum liðsmönnum Versló-liðsins á meðan dómarahléinu stóð, en lið Versló stóð í anddyri skólans. Nokkrar stúlkur hefðu komið til Versló-manna, spurt hvort þeir vissu úrslitin og þeir hefðu svarað að bragði að Versló hefði unnið með 140 stigum og að þú, Davíð, værir ræðumaður kvöldins. Stuttu seinna kom oddadómari upp í pontu og tilkynnti þessi sömu úrslit.
Annar umræddra aðila er kunningi minn sem ég þekki og treysti og því taldi ég ekki annað en að hann væri að segja satt. Kannski voru það mistök af minni hálfu.
Hins vegar, miðað við framkomu ykkar vikuna fyrir keppni, sem einkenndist af stælum og hroka, vissi ég ekki við hverju ég átti að búast. Enn og aftur; mín mistök hér á ferðinni.
Ég ætla að fara að fordæmi þínu Davíð og ekki tjá mig frekar um þetta mál hér á blogginu mínu. Verð samt að viðurkenna að það gleður mig hvað allt lifnaði við hérna á svona stuttum tíma.
Mig langar þó í lokin að benda Verslingum á, að allar samkomur haldnar innan veggja og í nafni MA eiga að vera með öllu vímulausar. Það sama gildir um MorfÍs-keppnir.
Ævar - Bloggeigandi |  |
  |  |  | Addi November 27, 2006 10:55 PM PST
Vá...
Er það ímyndun í mér eða eru verslingar að skjóta sig í fótinn hérna með því að vera með áframhaldandi dónaskap???
Ber mér að skilja svo á ykkur, þar sem að þið farið ekkert í felur með ykkar skoðanir á MA-ingum, að þið trúið á málfrelsi og tjáningarfrelsi. Hvernig væri þá að leyfa eiganda þessa ágæta bloggs að skrifa það sem hann langar til án þess að þið þurfið að tjá ykkur um andúð ykkar á öllu sem ykkur finnst ekki vera heilagur sannleikur út frá ykkur sjálfum? |  |
  |  |  | Name November 27, 2006 10:22 PM PST
Var það ekki pottþétt þú Ævar sem sast eins og auli í sætinu þínu og reifst ljósmynd af Birni Braga meðan hann flutti ræðu hérna um árið.
Sko það er eitt þegar verið er að tala um að klappliðið sé að trufla. En að ræðumaður sitji í sætinu sínu upp á sviði og truflar annan ræðumann svona, er það hallærislegasta og fáránlegasta sem ég veit um.
Fannst bara skemmtilegt að rifja þetta aðeins upp fyrir þér, í ljósi þess sem þú lætur móðinn mása eins og það sé enginn morgundagur um það hvað morfís sé að fara til fjandans og hvað fólk sé orðið dónalegt.
Annars ætla ég ekki að skipta mér meira af þessari umræðu. Reyndar er það aðeins eitt sem mig langar mjög svo að vita, bara upp á forvitnissakir.
Hvaða heimildir hafið þið fyrir því að einhver okkar vissi úrslitin fyrirfram? Ég ræddi þetta við liðsfélaga mína og enginn þeirra kannaðist við þetta, og sjálfur vissi ég úrslitin ekki fyrr en þau voru tilkynnt.
Og því hljóðar spurningin mín svona: Af hverju haldið þið að við höfum viðtað hver niðurstaðan í keppninni yrði, áður en dómari tilkynnti úrslitin?
Kv. Davið Gill |  |
  |  |  | Jónína November 27, 2006 09:50 PM PST
eða með dónaskap átti þetta nú að vera |  |
  |  |  | Jónína November 27, 2006 09:47 PM PST
Okei þetta með e-pilluna var kannski ekki það versta enda er búið að fjalla mikið um það í fjölmiðlum...
en að taka dæmi um barn sem var nauðgað í búðing og maka sig svo út í búðingnum er náttúrulega fyrir neðan allar hellur..aðeins of langt yfir strikið
þið voruð ekkert minna hrokafull eða með dómaraskandal en verzlunarskólinn |  |
  |  |  | Birna P November 27, 2006 08:48 PM PST
krakkar, krakkar...það að væna okkur um óvirðingu gagnvart aumingja stúlkunni sem dó vegna e-pilluáts er hreint út sagt það fáránlegasta sem ég hef heyrt! ÞAÐ DAUÐSFALL ER RAUNVERULEIKINN blákaldur, en ekki einhverjir aumingjalegir kúkabrandarar eða skítatal. Ræðumaður MA talaði um þetta tiltekna mál alvarlega, án nokkurar óvirðingar og var svo sannarlega ekki að reyna að vera fyndinn, einfaldlega bara að miðla sannleikanum, annað en lið Verzló sem talaði af sér og sýndi ekkert nema hroka, lítilsvirðingu, barnaskap og númer 1,2,og 3 DÓNASKAP!
|  |
  |  |  | Jón November 27, 2006 06:56 PM PST
Ótrúlegt hversu þröngsýn og fáfróðir sumir geta verið. Ég þarf ekkert að útskýra reglur morfís neitt frekar en fyrir svaramenn hafa svarað en ég held að þið akureyringar ættu aðeins að róa ykkur og sjá hverjir "brutu" af sér þar sem að ekkert sem VÍ gerði var brot á neinum morfís lögum og miðað við allar lýsingar þá hljómar þetta eins og hver önnur morfís keppni en bara með fullt af væli af hálfu tapliðsins |  |
  |  |  | Björn Atli Davíðsson November 27, 2006 06:51 PM PST
Ég þekki þig ekki, en dæmt út frá því sem þú skrifar á þetta blogg ertu með tapsárari náungum.
Þú talar um dómaraskandal, en MA-ingar hljóta samkvæmt reglum morfís að hafa samþykkt þessa dómara.
Dómarar dæmdu verzlingum 80, 70, og 15 stiga sigur áður en tillit var tekið til refsistiga, það var enginn sem dæmdi verzló yfir 100 stiga sigur. Mér hefði þó ekki þótt það athugavert, þarsem Verzlingar komu með fleiri svör sem og fleiri rök.
Þið hinsvegar töngluðust á því að Satan væri það sem freistaði menn til að nauðga börnum og þótti mér frásögn sú vægast sagt ósmekkleg. Svo töluðuð þið um unga stúlku sem lést nýlega við inntöku e-pillu. Slík óvirðing við nýlátna manneskju er með því lágkúrlegasta sem ég veit.
Pældu aðeins í því áður en þú sakar okkur um óvirðingu í garð fundarstýru, sem var hlutdrægur mannhatari og kunni ekki reglurnar´.
Sýndi það sig best þegar hún rak á eftir meðmælanda verzlinga, truflaði hann við svaraskrif og kallaði hann að lokum aftur upp í pontu. Ræðumenn mega taka sér allan þann tíma sem þeir vilja, það á hver maður að vita sem hefur keppt ræðukeppni.
Svo virðist þú vera á móti lúðrum, trommum og bjór, og þykir mér það teprulegt. |  |
  |  |  | Name November 27, 2006 06:38 PM PST
Mér finnst merkilegt að MA-ingar sé að tala um að jarða morfÍs eins og það var þegar þeir sjálfir geta ekki einu sinni virt reglur þess. Meira að segja fundarstýran. |  |
  |  |  | Name November 27, 2006 03:34 PM PST
Vá hvað þetta er heimskulegt blogg... |  |
  |  |  | Níels November 27, 2006 02:12 PM PST
er þetta eitthvað grín.....fundarstjórinn var á túr það er klárt...hún kallaði t.d Hafstein Gunnar meðmælanda Verzló tvisvar upp í pontu sem má ekki....þú mátt taka þér eins mikinn tíma og þú vilt til þess að koma þér upp í pontu.....allir dómarar voru sammála með úrslitin þannig að það er ekki hægt að segja að þetta var dómaraskandall. Einn dómari dæmdi Verzló 80 stiga sigur einn dæmdi verzló sirka 70 stiga sigur og oddadómarinn sem var by the way frá akureyri dæmdi samt verzló 17 stiga sigur. Sem reiknaðist eftir refsistig 4 stiga sigur Ma....Þrír dómarar sammála þannig að ég á erfitt með að sjá dómaraskandalinn...Hins vegar finnst mér leiðinlegt að sjá eftir liði eins og MA úr keppninni því að þarna voru afbragsflutningsmenn en aftur á móti hjökkuðust þeir í sama farinu alla keppnina og áttu því ekkert betra skilið....Og það skal enginn segja að fundarstjórinn hafi staðið sig vel...ég hef aldrei séð annað eins rugl... hún vissi ekkert og bauð upp á þetta allt. |  |
  |  |  | Svavar November 27, 2006 02:11 PM PST
Úff hvað sumir geta verið einstaklega þroskaheftir! Það er greinilegt að þið hafið ekki komist langt í þessari keppni mjög lengi!
Í fyrsta lagi þá ættuð þið endilega að kíkja yfir reglur morfíss hvað varðar fundarstjórn.
Fundarstjóri er í fyrsta lagi hlutlaus. Ræðumaður má taka sér eins fáránlega langan tíma og hann mögulega vill þangað til að hann fer upp í pontu eftir að það er búið að kalla hann upp og það er stranglega bannað að reka á eftir ræðumanni.
Fundarstjóri má alls ekki sussa á lið þegar það er að fagna sínu eigin liði þegar að ræða er búin og þegar að ræðumaður er á leið upp í pontu.
Hvergi kemur fyrir í morfíslögum að það megi ekki vera með lúðra, trommur, hrossabresti og hvað annað sem skapar hávaða, einungis er bent á að vera ekki með þessa hluti í notkun meðan að dómarar ráða ráðum sínum. Þarna skín biturleiki ykkar ma-inga í gegn þar sem að rétt rúmt 200 manna fylgi náði að yfirgnæfa ykkur. Einnig er það mistök af ykkar hálfu að hafa verið með blað sem á stendur hvenær "Nei" á að koma og að sjálfsögðu hefði hvaða klapplið sem er notfært sér þetta sér í vil. Enn og aftur ykkar mistök. Einnig var enginn varðmaður grættur, heldur var sá umtalaði varmaður dónalegur og var verið að benda honum á að hann var að fylgja ræðuliði VÍ í vitlausa stofu þar sem að þeir voru með ræður sínar og förutask í annarri stofu.
Endilega hafið ykkar á hreinu og látið ekki biturleikann yfirtaka ykkur því þetta var sigur, og ekkert sem þið getið í því gert! |  |
  |  |  | - November 27, 2006 02:11 PM PST
Fundarstýran var úti að aka og hafði greinilega aldrei séð morfís keppni áður. Var þetta með "þögn í salinn" eitthvað grín eða? Það má fagna að vild þar til ræðumaður er kominn upp í pontu og við að hefja ræðu sína. Ekki eins og að klapplið verzló sé að reyna að trufla sinn eigin ræðumann með fagni. Get real. Svo var frekar sérstakt að fundarstýran var mjög dugleg við að segja verzlingum að þegja en sagði ekkert við ma-inga.
Svo skulum við nú alveg róa okkur á að vera hörundsár. "Það eru hommar í verzló" er söngur sem hefur verið sunginn af fjölmörgum skólum. Verzlingar tóku því ekkert illa og byrjuðu að syngja hann þeim til samlyndis. Því það er nú einu sinni ekkert til að skammast sín fyrir (þ.e. að hafa "homma í verzló"). En þegar sami söngur með smá breytingum er sunginn um MA, hvað þá.. þá fara allir í vörn og sækja tissjú fyrir tárin.
Við áreittum ekki fundarstjórann, hann áreitti okkur.
Hvernig færðu út að 2 af 4 sé meira en helmingur liðs ? Stærðfræðikennslan ekki að gera sig þarna á Akureyri ?
Ræðulið Verzlunarskólans var með betri ræður, betri ræðumenn, og vann útaf því.
Takk fyrir keppnina MA. Sjáumst á næsta ári. |  |
  |  |  | Níels November 27, 2006 02:06 PM PST
Er verið að grína í mér eða.....Það stendur skýrt og greinilega í lögum morfís að ræðumaður má taka sér eins mikinn tíma og hann vill í að koma sér upp í pontu og raða svörunum sínum upp....Það sem hinsvegar má ekki er að kalla upp ræðumann tvisvar sem fundarstjórinn gerði....allir dómararnir voru sammála um úrslitin einn dæmdi c.a 80 stiga sigur annar sirka 70 og oddadómarinn dæmdi verzló 17 stiga sigur....svo drógust frá refsistig og út kom 4 stiga sigur ´hjá Ma þannig að þessi keppni er eins langt frá því að vera dómaraskandall og hægt er........slakiði svo aðeins á í biturleikanum |  |
  |  |  | Unnur November 27, 2006 01:14 PM PST
Vá hvad er í gangi eiginlega! Tetta er ømurlegt! |  |
  |  |  | Soffía November 26, 2006 07:06 PM PST
Eins og talað út úr mínu hjarta!! algjör skandall! heyrumst sæti;) |  |
  |  |  | Geirármann November 26, 2006 06:29 PM PST
þetta hlýtur að hafa verið mjög spes... leiðinlegt ef þetta þarf að fara út í svona vesen þar sem þetta er svo mikil snilldarkeppni... |  |
  |  |  | Unnur Birna November 26, 2006 02:12 PM PST
Eru þetta ekki allt bara ... tæknileg mistök? |  |
  |  |  | Sirrý Sif Sigurlaugardóttir November 26, 2006 02:09 PM PST
Þarf að jarða gömlu Morfís eins og við jörðuðum busunina?
Þetta hljómar fáránlega. Ég hefði viljað vera þarna og snúa afturendanum smekklega í Vesalingana... sýna þeim að við vorkennum þeim fyrir að vera svona kjánaleg.
Tss...
Hvað er samt hægt að gera? |  |
  |  |  | María November 26, 2006 01:42 PM PST
Gott blogg. Mætti halda að þú hefðir verið í morfís einhvertíman eða eitthvað ;) |  |
  |  |  | Steinunn November 26, 2006 10:19 AM PST
Spilling.
Annars er ég eiginlega bara orðlaus. |  |
  |  |  | Kristín Helga November 25, 2006 10:57 PM PST
Það var ómetanlegt að fá ykkur Sigurð Helga í klöppin og æsinginn. Ég er enn orðlaus... og blöskrar á allan mögulegan hátt. |  |
  |  |  | Svala November 25, 2006 09:57 PM PST
Það er ekki langt fyrir mig að fara.. bara nokkur skref yfir götuna og þá er ég komin.. ;) Ég laumast yfir í húmi nætur með fílusprengjur og húndakúk og skelli þessu öllu á "Marmarann"! |  |
  |  |  | Arnar Ómarsson November 25, 2006 09:36 PM PST
Vá hvað þetta var ömurlegt.. en já ég er sammála þér með þetta allt! ég er samt bara ekkert hissa á framkomu verslinga.. þeir hafa alltaf verið svona. haha og þeir sem héldu því fram að við hefðum verið að brjóta reglur... "uhh tæknilega séð sko [...]" |  |
  |  |  | Haukur November 25, 2006 09:25 PM PST
Versló, ég veit hvar þú átt heima... |  |
|