MA-gengið
Addi
Andri
Atli Sig
Auður Stefáns
Aui
Elísa
Embla
Emmi Freyr
Emmi Geir
Gestur
Guðrún krulla
Haukur
Helgi Vilberg
Keli
María
Ó. Haukur
Ragnheiður
Siggeir
Siggi Gísli

Sirrý
Steinunn Póló
Sverrir Páll
Unnur Birna
Örlygur Hnefill
Þórdís
4. bekkur 2003-2004

Familían
Benni's Harmony
Eyri
Guðni
Ingalóa

Annað sniðugt
Akureyri í beinni
Back to the Future
Chuck Palahniuk
Colin Hay
Eddie Izzard
Ég komst inn
Five for Fighting
Hr. Hollywood
J.K. Rowling
MA-komiks
Muninn.is
Neil Gaiman
RENT
Rígurinn
Scrubs
Steve Martin
Zach Braff



Spring Awakening
Original Broadway Cast
-------
Gerum eitthvað róttækt
förum að sofa
Helgi Vilberg
-------
Absolution
Muse
-------
The Ultimate Party Collection Vol. 1
Sick Animation
-------
We were here
Joshua Radin
-------
28 Days Later
Original Soundtrack
-------
Hair
The American Rock Musical
-------
Hedwig and the Angry Inch
Original Movie Soundtrack
-------
Twenty-something
Jamie Cullum
-------
Catching Tales
Jamie Cullum
-------
Two Lights
Five for Fighting
-------
Walk the Line
Original Soundtrack
-------
Sálin og Gospel
Sálin og Gospel
-------
Avenue Q
Original Broadway Cast
-------
Robbie Williams
Rudebox
-------
Garden State
Original Movie Soundtrack
-------
The Last Kiss
Original Movie Soundtrack
-------

web statistics
 
February 17, 2008
Farvel - Í bili að minnsta kosti



Kevin Spacey sagði eitt sinn: "The less you know about me, the easier it is to convince you that I am that character on screen. It allows an audience to come into a movie theatre and believe I am that person." Ég hef ákveðið að taka kappann á orðinu - enda mikill kappi hér á ferðinni.

Þess vegna ætla ég að hætta að blogga.

Ef fólk vill vita hvað ég er að bralla má það e-maila mig (aevarthor hjá gmail) eða adda mér á msn (ffh_ufo hjá hotmail) eða Facebook. Svo verð ég áfram penni hjá hann/hún og þar ætti að vera hægt að lesa eitthvað eftir mig í hverjum mánuði.
Þó er aldrei að vita, ef eitthvað stórmerkilegt er að gerast, að ég hendi inn einhverju hér inn. Þannig að ef þú hefur ekkert að gera geturðu tékkað hér inn. Kannski verður eitthvað nýtt komið. Aldrei að vita. En kannski verður ekkert...

Ég er búinn að blogga í mörg ár - þannig að þetta er mjög furðuleg og blendin tilfinning. Ég byrjaði á gömlu heimasíðunni minni í 10. bekk með "Vefdagbók", færði mig svo yfir á folk.is árið 2004 og svo yfir á blogdrive rúmlega ári seinna. Þetta eru næstum 8 ár. Shit.
Þrjár færslur á bloggtímabilinu hér á blogdrive.com standa uppúr: Þegar ég komst ekki inn í LHÍ
, þegar ég svo komst inn og þegar Versló var dæmdur sigur yfir MA í MorfÍs. Þessi þrjú blogg kæfðu kommentakerfið mitt og munu vafalaust fara á spjöld sögunnar.
Sögunnar minnar þ.e.a.s.
Því mér fannst þau merkileg.
Ég held að besta kommentið sem ég hafi fengið hafi verið frá Hauki Sig, þegar hann sagði orðrétt: "WTFOMGBBQ!!!1"

Takk fyrir að nenna að fylgjast með í allan þennan tíma.

Annars ekkert.

Yfir og út.

Posted at 22:13 by 20atb
Sagt... (17)  

February 13, 2008
Stiklað á stóru. Eins og Stórfótur...


Fótspor eftir Stórfót. Maðurinn á myndinni er ekki Stórfótur.

  • Á föstudaginn erum við með Brecht-sýningu í LHÍ. Brecht var maður sem var ekki bara með nafn sem fáir geta borið fram rétt heldur skrifaði hann líka helling af áhugaverðum verkum. Ef þig langar að koma og sjá skaltu mæta niðrí LHÍ á Sölvhólsgötunni á föstudaginn kl. 16:00.
  • Nýtt tímarit hann/hún er komið út. Farið í næsta Bónus eða á htimarit.is og lesið greinar eftir okkur bræðurna um þema mánaðarins - ástina (enda sérfræðingar á því sviði). Svo erum við líka að fíflast með eitthvað annað líka.
  • Er kominn inn á Facebook sem er fáránleg tímasuga. Fólk er að senda mér rusl allan daginn sem ég get ekki skoðað nema senda það á 20 vini mína. Einhvers staðar situr maðurinn sem fann upp keðjubréfið og hlær.
  • Ég er vefstjóri á síðunni www.leiklistarnemar.is. Held ég hafi ekki minnst á hana hér áður. Endilega kíkið á hana ef þið viljið sjá hvað við erum að bralla.
  • Í þarsíðustu viku veislustýrði ég minni fyrstu skemmtun: Þorrablóti á Varmalandi. Það gekk vel, enda naut ég dyggrar aðstoðar risa-sombrerohattsins míns. Næsta gigg er núna eftir rúmlega viku: ég er að veislustýra árshátíð Reykjavíkurdeildar Rauða Krossins.
  • Tortímandagiggið gekk eins og í sögu (eftir C.S.Lewis - fullt af talandi ljónum og allavega ein snædrottning) og var allt tekið upp. Hendi kannski myndbandi á netið við tækifæri.
  • Svo förum við bráðum að fara í Shakespeare. 9 vikna námskeið sem verður alveg fram í maí. Sjiiiitt...
  • Já, og mér skilst að borgarstjórnin hér í Rvk. sé í svo miklu rugli að þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst síðan MA var dæmt tap á móti Menntaskólanum við Stjörnutorg í fyrravetur.

Stórfótur og bensínlausi pallbíllinn hans


Stórfóur, Guffi og Max.

Posted at 19:55 by 20atb
Sagt... (2)  

February 11, 2008
Fáránlega fyndið

Tortímandinn spilaði um helgina í LHÍ og allt varð vitlaust. Guðni festi valið (festivalið - geti it?) á filmu og aldrei að vita nema brot rati á youtube.
En þangað til getur fólk kæst yfir þessum kauða hér fyrir neðan. Shit hvað þetta er fyndið.
Svo minnir hann mig líka á Bela...




Posted at 20:27 by 20atb
Sagt... (3)  

February 8, 2008
Tortímandinn

Við erum að spila í LHÍ, Sölvhólsgötu, á morgun (laugardag) uppúr klukkan 11 um kvöldið. Endilega mættu og dansaðu með okkur og nýju brössurunum og fiðluleikaranum og bakraddarsöngkonnunni (allt að verða vitlaust!) - en passaðu að mæta fínt klæddur/klædd því það er Vínarball tónlistardeildarinnar sem við erum að spila á.

Fór annars á Sweeney Todd fyrir stuttu - töluverð vonbrigði þar á ferðinni. Mörg mikilvæg atriði klippt út á kostnað aukapersónanna svo Depp gæti fengið að syngja fleiri lög. Æégveitþaðekki. Og ekki byrja að tala um geðveikrahælissenuna. Svooo léleg. Það hefði verið hægt að gera þetta miklu betur.

Annars er allt að gerast. Kjallinn er kominn á Facebook með alltof marga vini og ég veit ekki hvað og hvað. Kannski maður fari bara að einbeita sér að því og hætti að blogga?

Annars ekkert.

Jú, bíddu - María er sæt.

Posted at 22:25 by 20atb
Sagt... (4)  

January 30, 2008
Úr bókinni "Kúnstin að kyssa" frá 1942

,,Hvernig á að koma sér í mjúkinn hjá stúlkum?

Vitanlega á að koma því þannig fyrir fyrst, að stúlkan sitji við brík sófans og setjast síðan við hlið hennar. Þá getur hún síður skotið sér undan, þegar hann fer að fara á fjörurnar við hana. Þegar þessu hefir verið komið svona fyrir, með einum eða öðrum ráðum,  má með hægu móti hagræða púðunum við bakið á henni og læða um leið handleggnum aftur fyrir sófann, og síðan smátt og smátt um herðar henni. Látið yður ekki bregða, þótt hún víki sér undan; og jafnvel þótt hún víki sér undan og æpi, þá skuluð þér ekki kippa yður upp við það. Þér skuluð meir að segja vera rólegir, þótt hún víki sér undan, æpi og reyni að standa upp. Haldið henni hógværlega, en þéttingsfast og sefið ótta hennar með sannfærandi orðum. En ef hún víkur sér undan, æpir hátt eða rekur upp öskur, þá skuluð þér fara að gá að yður; og ef hún fer að klóra framan í yður þá megið þér fara að hugsa ráð yðar og reyna að losa yður úr þessu vandræðaástandi. Slíkar stúlkur eru engin lömb að leika sér við… og þær láta ekki kyssa sig.”



Posted at 18:11 by 20atb
Sagt... (3)  

January 27, 2008
Prakkarapi - Hahaha...



Posted at 12:47 by 20atb
Segðu...  

January 25, 2008
Tepptur í veðri

Jæja, öndin fer ekki af stað alveg strax því veðrið er brjálað. Alveg snar. Fólki er bannað að keyra um götur Reykjavíkur og ég veit ekki hvað og hvað. Þannig að ég er veðurtepptur á Laugarnesinu með hópnum mínum. En hey, þetta gæti verið verra. Ég gæti verið fastur á sundskýlu á Hlemmi.

Posted at 08:23 by 20atb
Sagt... (2)  

January 24, 2008
Bra-bra

Á morgun, um 9-leytið, verð ég á Hlemmi á sundskýlu einni fata að bíða eftir strætó sem er dulbúinn sem risastór önd. Um borð verða alls kyns furðufiskar og önnur sjávardýr, ásamt skipstjóra sem svífst einskis.
Komið endilega og verið með okkur. Nánari upplýsingar á leiklistarnemar.is





Annars ekkert.

Posted at 16:41 by 20atb
Sagt... (1)  

January 22, 2008
London, leikhús og ammæli

Þá erum við búin að panta miða til London. Við misstum okkur aðeins þegar kom að því að panta leikhúsmiða og enduðum á því að panta miða á margar sýningar. Þessar sýningar, til að vera nákvæmari:

 

  
Þetta ætti að vera gaman og ekkert annað.

Annars á María afmæli eftir 2 tíma...

Posted at 20:36 by 20atb
Sagt... (2)  

January 20, 2008
Tvær strýpur í viðbót

Er ekkert búinn að komast á netið síðustu daga að ráði og hendi því inn tveimur strýpum í dag í "Ég í teiknimyndasöguformi"-þemað. Annars var innflutningspartý fyrir Guðna í gær sem gekk vel og mikið gaman. Furðu rólegt samt, en Sveinn var í því að æsa fólk upp. Sem og magnaður live tónlistarflutningur þar sem gítar, ukulele og munnharpa í C komu við sögu.


Annars ekkert.

Posted at 11:30 by 20atb
Sagt... (1)  

Next Page

 

 

Blogdrive